Hin árlega Vorgleði okkar verður haldin á skólalóðinni við Grunnskólann á Ásabraut föstudaginn 31. maí frá 11:00 - 13:00 (ath. tímasetningar í dagskrá Sjóarans síkáta eru rangar). Starfsfólk skólans og Foreldrafélagið taka höndum saman og standa sameiginlega að þessari fjölskylduhátíð. Margt skemmtilegt verður í boði eins og sést hér fyrir neðan. Foreldrafélagið mun gefa grillaðar pylsur og drykk með.
Nemendum er skylt að mæta þennan dag þar sem þetta er skóladagur og við hvetjum foreldra og aðra ættingja til að mæta og taka þátt í gleðinni. Við hvetjum alla til að mæta í hverfalitunum.
Meðal þess sem í boði verður má nefna:
Andlitsmálun - boðið verður upp á að fá hverfalitina á andlitið.
Gerð vinabanda - Limbó / húllahopp - Boltaleikir - Jafnvægisslá - Snú-snú - Krítarteikningar - Sápukúlur - Teygjutvist - Bocchia - Golfþrautir - Spil - Yfir
Tónlist - París - Tombóla 4.bekkja - Stultur - Föndur - Myndlist - Stuttmyndir - Skák
Hjólaskoðun: Lögreglan býður upp á hjólaskoðun við fjölsmiðjuna, norðan við skólann, frá kl. 11:00 - 11:30. Fótboltaleikur þar sem nemendur í 10. bekk etja kappi við starfsfólk skólans.
Við hvetjum alla krakka til að koma með hjólin sín til skoðunar! Rétt er að taka fram að ekki er leyfilegt að hjóla á skólalóðinni, hjólreiðar eru einungis leyfðar á merktu svæði norðan við skólann. Munum öll eftir hjálmunum.
Það eru vinsamleg tilmæli að hundar verði ekki hafðir með á hátíðina.
Hlökkum til að sjá ykkur
Starfsfólk og Foreldrafélag Grunnskóla Grindavíkur.