Hið árlega mót í tenglsum við sjómannahátíð bæjarins - Sjóarinn síkáti open verður haldið laugardaginn 1. júní. Mótið verður með punktafyrirkomulagi og verða veitt verðlaun fyrir fjögur efstu sætin með forgjöf og efsta sæti án forgjafar.
Nándarverðlaun verða á öllum par 3 brautunum. Teiggjafir í boði NÓA-SÍRÍUS, Verðlaunin er vegleg og hafa verið aukin frá fyrri árum þar er m.a. að finna fiskafurðir, matarúttektir hjá NETTÓ, út að borða á SALTHÚSINU Restaurant, fjölskylduárskort í Bláa Lónið, KAI hnífasett frá Pro Gastro og margt fleira.
Nú er um að gera að njóta helgarinnar í Grindavík á einni glæsilegustu sumarhátíð landsins og taka þátt í skemmtilegu golfmóti á frábærum velli sem kylfingar hafa verið ósparir á að hrósa í hástert.