Sjómannadagshelgin er framundan og að vanda verður glæsileg fjölskyldudagskrá á Sjóaranum síkáta í Grindavík. Þá verður líka opnuð almenningi Guðbergsstofa en hún hefur þegar vakið athygli fjölmiðla en fjallað var um hana í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í gær.
Guðbergsstofa er safn og sýning um Guðberg Bergsson eins virtasta rithöfundar Íslendinga fyrr og síðar. Kristinn Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs var á línunni í Síðdegisútvarpinu og sagði hlustendum meira frá Guðbergsstofu.