Náttúruleg leiktćki sett upp í Selskógi

  • Fréttir
  • 27. maí 2013

Vinnudagur Skógræktarfélags Grindavíkur var í Selskógi í gær. Fjöldi fólks mætti í Selskóg með stjórn Skógræktarfélagsins, bæjarstjóra, formann bæjarráðs og forseta bæjarstjórnar ásamt Páli Gíslasyni gröfumanni í broddi fylkingar en verkstjórar voru Sarka Mrnakova George Hollanders.

Sett voru upp náttúruleg leiktæki en efniviður úr skóginum sjálfum, tré sem voru grisjuð, voru notuð í leiktækin. Verkið gekk vel enda samtakamáttur þeirra sem mættu mikill og vinnugleðin skein úr hverju andliti. Vel tókst til og  er verkið langt komið.

Er ljóst að með tilkomu Ingibjargarstígar, frá Grindavík og í Selskóg, stígagerð almennt í Grindavík og nú síðast uppbygging í Selskógi, munu Grindvíkingar nýta sér útivistarmöguleika í Selskógi mun meira í framtíðinni.

Hér má sjá nokkrar myndir frá þessu skemmtilega degi í Selskógi.

 

Þetta er teikningin sem unnið var eftir við uppbyggingu leiksvæðisins í Selskógi.
Myndir: Facebooksíða Skógræktarfélagsins o.fl.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir