Kaffisala Kvenfélags Grindavíkur verður á sínum stað á Sjóaranum síkáta, frá kl. 15 - 17, á Sjóaranum síkáta í Grunnskóla Grindavíkur sunnudaginn 2. júní
Kvenfélag Grindavíkur var stofnað 24. nóvember 1923 og verður því 90 ára á þessu ári. Allur ágóði félagsins rennur til góðra málefna í Grindavík. Það sem af er árinu höfum við verið með aðalfund, súpufund, páskabingó og aprílfund þar sem að Heiðar Jónsson kom og skemmti félagskonum. Næst á dagskrá er sjómannakaffið sunnudaginn 2. júní kl. 15:00 - 17:00 og eru allar kvenfélagskonur hvattar til að aðstoða við kaffisöluna, auk þess að koma með köku. Móttaka á kökum hefst kl. 12.00.