Fjögur íþróttamót verða laugardaginn 1. júní á Sjóaranum síkáta og hinn árlegi knattspyruleikur hverfanna fer fram á sunnudeginum 2. júní. Hið árlega golfmót Sjóaranum síkáta hefst á laugardeginum kl. 8 á Húsatóftavelli, sundmót Sjóarans síkáta kl. 9 í sundlauginni, knattspyrnumót 6. flokks drengja á Grindavíkurvelli kl. 9.30 og svo verður Bacala knattspyrnumótið fyrir 30 ára og eldri á Grindavíkurvelli kl. 15.
Dagskrá íþróttaviðburðanna er þessi:
Laugardagur 1. júní:
08:00 Sjóarinn Síkáti - VOOT beita golfmótið er með punktafyrirkomulagi. Eins og undanfarin ár verður engu til sparað í að gera mótið sem veglegast. Megin uppistaða vinninga kemur víða að, m.a. fiskafurðir, sælgæti, matvara og fleira. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin með forgjöf og efsta sætið án forgjafar. Einnig verða
námundarverðlaun á öllum par 3 holunum. Hámarksforgjöf kk er 24 og kvk 28. Skráning á www.golf.is. Þátttökugjald er 3.500
09:00 - 14:00 Sundmót Sjóarans síkáta. Keppnisgreinar eru: 50m Bringusund, 50m skriðsund, 50m baksund, 50m flugsund auk þess sem keppt er í 4x25m stakkasundi. Keppni í stakkasundi, sem hefst kl. 11:00 er opið öllum og eru hópar, hverfi, fyrirtæki, áhafnir báta o.fl. hvattir til að taka þátt. Glæsileg verðlaun. Sundlaugin verður opin almenningi frá kl. 11:00 - 17:00
09:30 Knattspyrnumót á æfingasvæði Grindavíkur í 6. flokki drengja. Keppt er í A, B, C og D liðum og er von á 200 þátttakendum, fyrir utan foreldra og forráðamenn.
15:00 - 17:00 Bacalao-mótið í knattspyrnu. Knattspyrnumót fyrir 30 ára og eldri, fyrrum knattspyrnuhetjur Grindvíkinga nær og fjær.
Sunnudagur 2. júní:
17:15 Knattspyrnumót hverfanna. Knattspyrnumót á Grinda-víkurvelli á milli hverfanna fjögurra í Grindavík. Keppt er á hálfum velli, 10 í liði, 2x6 mínútur. Valið er í lið samkvæmt eftirfarandi reglum:
- Enginn meistaraflokksleikmaður má vera með.
Skylda er að spila á strigaskóm (takkaskór bannaðir) og markvörður verður að vera í stígvélum. Leiknar verða 2x6 mínútur. Leiknir verða undanúrslitaleikir (dregið á staðnum) og svo úrslitaleikur. Liðin þurfa að mæta í búningum í sínum litum.
Yfirdómari er Gunnlaugur Hreinsson.
Senda þarf liðsuppstillingu í síðasta lagi 31. maí á
sjoarinnsikati@grindavik.is