Bláa hverfiđ fyrst í göngunni í ár
Venju samkvæmt verður litaskrúðganga úr hverfunum fjórum að hátíðarsvæðinu við Hafnargötu föstudaginn 31. maí á Sjóaranum síkáta. Mæting í gönguna er ekki seinna en 19:45. Liðin skiptast á að vera fyrst og í ár er komið að Bláa hverfinu að leiða gönguna niður Ránargötuna.
- Appelsínugula hverfið leggur af stað frá 50+ blokkinni á gatnamótum Suðurhópsbrautar og Stamphólsvegar (gengur niður Stamphólsveg að kirkjunni og út á Ránargötu).
- Rauða hverfið leggur af stað frá Hérastubbi bakara (gengur Gerðavelli og suður Víkurbraut að Ránargötu).
- Græna hverfið leggur af stað frá gatnamótum Leynisbrautar og Staðarhrauns (gengur upp Heiðarhraun og að Ránargötu).
- Bláa hverfið leggur af stað frá Kvennó (gengur norður Víkurbraut að Ránargötu).
Öll hverfin ganga svo niður Ránargötuna að hátíðarsvæðinu í þessari röð: (1) bláir, (2) appelsínugulir, (3) rauðir og (4) grænir.