Bubbi Morthens slær botninn í Sjóarann síkáta í ár en hann verður með tónleika í Grindavíkurkirkju sunnudagskvöldið 2. júní kl. 20:30. Húsið opnar kl. 20:00. Líkt og mörg undanfarin ár heldur Bubbi af stað með kassagítarinn. Mun hann sem fyrr leika bæði gamalt efni og nýtt auk þess að ræða við áhorfendur um málefni líðandi stundar.
Bubbi gaf út geislaplötu fyrr í sumar sem ber nafnið Stormurinn og hefur fengið frábæra dóma og selst gríðarlega vel. Bubbi mun heimsækja gesti Sjóarans síkáta sunnudaginn 02. júni og verða tónleikarnir haldnir í Grindavíkurkirkju.
- miðaverð 2.500 kr
- miðasala á www.midi.is og við innganginn