Brúðusýningin Pétur og úlfurinn verður sýnd í Grindavíkurkirkju 1. maí nk. kl. 11:00. Fjölskyldustund þar sem við endum barnastarf kirkjunnar með brúðuleik. Bernd Ogrodnik brúðuleiklistarmað mætir með hina bráðskemmtilegu og gullfallegu sýningu sína, Pétur og úlfinn.
Bernd færir okkur þetta yndislega ævintýri á formi brúðuleikhúss með aðstoð handútskorinna leikbrúða sem Bernd stjórnar af sinni alkunnu snilld.
Sýningin var sett upp í Þjóðleikhúsinu og fékk hún frábæra aðsókn og toppdóma gagnrýnenda.
Grillaðar pylsur og djús eftir stundina, hoppurólur verða úti fyrir börnin.
Verkalýðsfélag Grindavíkur styrkir brúðuleiksýninguna.
Allir velkomnir!
Grindavíkurkirkja