Hvorki fleiri né færri en þrír Grindvíkingar munu sitja á alþingi á næsta kjörtímabili. Páll Jóhann Pálsson fyrir Framsókn, Vilhjálmur Árnason fyrir Sjálfstæðisflokk og Páll Valur Björnsson fyrir Bjarta Framtíð náðu allir kjöri, Páll Jóhann og Vilhjálmur kjördæmakjörnir og Páll Valur sem uppbótarmaður. Grindvíkingar hafa aldrei átt fleiri þingmenn á einu kjörtímabili og er líklega landsmet miðað við höfðatölu!
B 9.262 atkvæði 34,5% 4 þingmenn
D 7.594 atkvæði 28,3% 4 þingmenn
S 2.734 atkvæði 10,2% 1 þingmaður
V 1.581 atkvæði 5,9% 0
Þ 1.268 atkvæði 4,7% 0
A 1.202 atkvæði 4,5% 1 þingmaður
T 904 atkvæði 3,4%
I 786 atkvæði 2,9%
G 702 atkvæði 2,6%
L 431 atkvæði 1,6%
J 412 atkvæði 1,5%
Kjördæmakjörnir í Suðurkjördæmi:
· Sigurður Ingi Jóhannsson (B)
· Ragnheiður Elín Árnadóttir (D)
· Silja Dögg Gunnarsdóttir (B)
· Unnur Brá Konráðsdóttir (D)
· Páll Jóhann Pálsson (B)
· Oddný G. Harðardóttir (S)
· Ásmundur Friðriksson (D)
· Haraldur Einarsson (B)
· Vilhjálmur Árnason (D)
Uppbótar
· Páll Valur Björnsson (A)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Vilhjálmur Árnason (D).
Páll Valur Björnsson (A).