Það var stuð á nemendum Grunnskólans þegar þeir mættu í sund og grill. Það táknaði lok á þemadögum í Grunnskólanum. Að mati aðstandenda tókust þeir mjög vel og augljóst að nemendur kunna að meta uppbrot í skólastarfi.
Valkostirnir voru hæfilegir og vonandi þannig að allir hafi fengið eitthvað við sitt hæfi. Það er þó endurskoðað á hverju ári og metið fyrir næsta skólaár.