Kæru Grindvíkingar! Kosningaskrifstofa Samfylkingarinnar, sem staðsett er að Víkurbraut 25, verður opin í dag frá klukkan 17. Að venju verður heitt á könnunni og nýbakaðar vöfflur í boði eins og okkur einum er lagið.
Á morgun, kjördag, verður svo kosningaskrifstofan að sjálfsögðu opin allan daginn en stórglæsilegt kaffihlaðborð verður á milli 14 og 17.
Við hvetjum alla til þess að kíkja við og kynna sér stefnu Samfylkingarinnar áður en haldið er á kjörstað.
Með jafnaðarmannakveðju
Stjórnin