Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 27. apríl 2013. Kjörskrá liggur frammi til sýnis á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62 2. hæð, fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort þeir séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar.
Kosið er í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2. Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00.
Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstjórn Grindavíkurbæjar