Það er ekki hægt að segja að Grunnskólinn sé eins og hann er vanur af sér. Nemendur úti um allar trissur og þvert á bekki og árganga. Er allt að verða vitlaust?
Nei, núna eru þemadagar í skólanum og nemendur hafa fengið að velja sér inn á ýmis áhugasvið og ganga þau þvert á bekki og árganga. Þannig er unglingastigið saman frá 7.-10. bekk, miðstigið, frá 4.-6. bekk og síðan yngri árgangar í Hópskóla. Hægt var að velja í milli ýmissa atriða s.s. kvikmynda, baksturs, íþrótta, handmennta og útlits svo eitthvað sé nefnt. Útvarpsstöð er rekin í sambandi við þemadagana og er hægt að ná útsendingunni með tíðninni FM 101,5. Þar skiptast nemendur og kennarar að stýra útvarpsþáttum.
Fengnir voru gestir til að fara yfir hársnyrtingu, meðferð efna í sambandi við förðun. Sjón er sögu ríkari.