Heilsuleikskólinn Krókur tók þátt í verkefninu Grænn apríl - hreinsunarátakinu Einn svartur ruslapoki. Föstudaginn 19. apríl fóru börn og kennarar og hreinsuðu allt rusl í kringum leikskólann. Því miður var þó nokkuð af rusli úti í náttúrunni og fylltu börnin nokkra ruslapoka. Við verðum öll að taka okkur á og ganga betur um okkar fallegu náttúru. Við fullorðna fólkið verðum að muna að við erum fyrirmyndir barnanna okkar.
Heilsuleikskólinn Krókur er Grænfánaskóli og fékk fyrst afhentan Grænfána árið 2007 og aftur árið 2010 og hefur sótt um að fá fánann afhentan í þriðja sinn núna í sumar.
Í umhverfisstefnu skólans segir:
Við í Heilsuleikskólanum Króki viljum með umhverfisstefnunni okkar sýna gott fordæmi og fræða alla í leikskólasamfélaginu um umhverfis- og náttúruvernd og hafa þannig jákvæð áhrif á umhverfi okkar til framtíðar.