Nemendur í 3.bekk fóru til Reykjavíkur á dögunum og var það hluti af vinnu í samfélagsfræði um land og þjóð. Alþingishúsið var heimsótt og þótti nemendum mikið til þess koma. Þeir voru mjög áhugasamir og spurðu mikið en Mörður Árnason alþingismaður tók á móti hópnum ásamt leiðsögumanni. Nemendur snæddu nestið í ráðhúsi Reykjavíkur og nutu endurnar við tjörnina góðs af heimsókninni og fengu brauðmola. Nemendur heimsóttu einnig Hörpu og voru svo heppnir að fá m.a. að fara í Eldborgarsalinn þar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands var á æfingu. Ferðin gekk í alla staði vel og var hegðun og framkoma nemenda til mikillar fyrirmyndar.