Úrslitaeinvígi Grindavíkur og Stjörnunnar um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta hefst á miðvikudag þegar liðin mætast í Röstinni kl. 19:15. Grindavík hefur heimaleikjaréttinn í einvíginu. Leikur númer tvö í Garðabæ verður á föstudaginn og þriðji leikurinn í Grindavík næsta mánudag. Ef til fjórða leiks kemur fer hann fram fimmtudaginn 25. apríl og ef til oddaleiks kemur verður hann sunnudaginn 28. apríl.