Styrkur til menningarstarfsemi og menningar tengdrar ferðaþjónustu
Menningarráð Suðurnesja sem tók til starfa á haustmánuðum 2007 hefur nú auglýst
eftir styrkumsóknum.
Allar upplýsingar um starsemi ráðsins má nálgast í bæklingi sem liggur frammi
á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar, einnig er komin tengill á forsíðu grindavik.is á
slóðina
menning/sss.is þar sem hægt er skila inn umsóknum á vefrænu formi. Einnig er hægt að prenta
út eyðublað til þess að póstleggja.
Fyrirspurnarform er einnig á síðunni.
Menningarráð Suðurnesja
Auglýsir eftir styrkumsóknum til Menningarráðs Suðurnesja vegna menningarstarfs
og menningartengdrar ferðaþjónustu á grunni samnings sveitarfélaga á Suðurnesjum og menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis um menningarmál,
Umsóknarfrestur er frá 15. janúar 2008 til 29. febrúar 2008.
Upplýsingar um styrkumsóknir verða aðgengilegar á skrifstofu S:S:S Iðavöllum
12 b Reykjanesbæ og einnig á skrifstofum allra sveitarfélaga á Suðurnesjum frá
og með 15 janúar.
Einnig verður hægt að nálgast upplýsingar á vefsíðum S.S.S.is og viðkomandi sveitarfélaga,
þar sem rafrænt umsóknarform verður aðgengilegt ásamt útprentanlegu umsóknareyðublaði
Verkefni sem geta komið til greina;
- Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning
viðburða á fleiri en einum stað.
- Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
- Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
- Verkefni sem stuðla að eflingu fagþekkingar á sviði menningar og lista.
Umsóknir skal senda, í tölvupósti og eða ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Suðurnesja
/ Skrifstofa S.S.S. Iðavöllum 12b 230 Reykjanesbær
Menningarráð Suðurnesja.