Forréttindi ađ taka ţátt í svona leik

  • Íţróttafréttir
  • 12. apríl 2013

„Það er virkilega ljúft að vera kominn í úrslit og bara ljúft að spila svona leik. Þetta var flottur körfubolti í alla staði fyrir framan fullt af áhorfendum. Það voru forréttindi að taka þátt í þessu," sagði Jóhann Árni Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, við Vísi eftir leikinn.

Hann átti virkilega flottan leik og steig ósjaldan upp þegar Grindavík þurfti á honum að halda.

„KR var að berjast fyrir lífi sínu í kvöld og eðlilegt að þeir hafi átt sín áhlaup og lagt allt í sölurnar. Við náðum að stoppa þá og halda þeim frá okkur."

Grindavík vinnur rimmuna 3-1. Voru KR-ingarnar erfiðari eða auðveldari en Jóhann Árni átti von á.

„Á pari fannst mér. Þetta er lið sem var spáð titli. Þeir eru með hörkumannskap en lentu í vandræðum í vetur og ætluðu svo að bjarga tímabilinu í úrslitakeppninni. Það er erfitt að gera það. Þeir verða enn sterkari á næsta ári með einn Kana í sínu liði."

Það er ljóst að Grindavík mætir annað hvort Stjörnunni eða Snæfelli í úrslitum en þau mætast á morgun og þá getur Stjarnan tryggt sig inn í úrslitin.

„Stjarnan á eftir að rúlla yfir Snæfell að mínu mati. Við ætlum aðeins að njóta sigursins og svo förum við að skoða Stjörnuna ef við fáum þá eins og ég býst við."


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál