Þessi mynd var tekin á fjórðu flöt á Húsatóftavelli í gær en Golfklúbbur Grindavíkur heldur þar sitt fyrsta mót í dag. Völlurinn lítur vel út. Ennþá eru lausir nokkrir rástímar. Opið er inn á allar sumarflatirnar.
Talsverð bleyta er á 5. braut og fremst á 6. braut. Kylfingar eru beðnir um að hafa það í huga. Annars lofar völlurinn góðu. Flatir voru slegnar og valtaðar á miðvikudag. Ekki er hægt að segja annað en að völlurinn komi vel undan vetri miðað við myndina sem er tekin af facebooksíðu GG.
Leiknar verða 18 holur og er ræst út á milli 09:00 og 14:00. Keppt verður í höggleik án forgjafar og einnig punktakeppni.
Veitt verða verðlaun fyrir fjögur efstu sætin í punktakeppni og efsta sætið í höggleik án forgjafar. Einnig verða veitt nándarverðlaun á 7. og 18. braut.
Verðlaun án forgjafar:
1. sæti - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 20.000 kr.-
Punktar með forgjöf
1. sæti - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 20.000 kr.-
2. sæti - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 15.000 kr.-
3. sæti - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 10.000 kr.-
4. sæti - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 8.000 kr.-
Nándarverðlaun.
7. braut - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 10.000 kr.-
18. braut - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 10.000 kr.-
Skráning er hafin á golf.is og hvetjum við alla til að taka þátt. Flatir voru slegnar og valtaðar í dag þannig að búast má fínum hraða á flötunum á föstudag.
Þess má geta að völlurinn verður opinn inn á sumarflatir alla páskahelgina. Völlurinn verður opnaður á fimmtudagsmorgun og verður opin inn á sumarflatir yfir páska. Kylfingar geta skráð rástíma á netinu.