Búið er að loka svokölluðum tipp í gryfju vestan Grindavíkurbæjar þar sem hægt var að losa garðaúrgang, þ.e. trjágreinar, gras og mold. Þess í stað hefur verið opnuð gámaþjónusta við hliðina á gámastöðinni við Nesveg þar sem boðið er upp á sömu þjónustu. Á svæðinu eru tveir gámar, annars fyrir trjágreinar og hinn fyrir gras og mold. Þá er sér gámur fyrir plastpoka. Stranglega bannað er að losa annað efni í gámana eins og t.d. heimilissorp. Fyrirkomulagið er eftirfarandi:
Hér er keyrt inn á svæðið af Nesvegi. Gámaþjónustan er við hliðina á gámastöðinni
Sunnan megin við gámasvæðið er búið að útbúa losunarsvæði fyrir trjágreinar, gras og mold. Við innkomuna eru skilti sem útskýra vel hvað það er sem má losa þarna.
Eins og sést á þessu skilti er þetta svæði til þess að losa garðaúrgang, þ.e. trjágreinar, gras og mold. Vinsamlegast fjarlægið umbúðir og hendið ekki heimilissorpi hér.
Í fremri gáminn eiga að fara tré og greinar. Þegar búið er að tæma ruslapokana á að setja pokana í sér ruslatunnu sem er þarna fyrir aftan gámana.
Í aftari gáminn á að fara gras og mold. Þegar búið er að tæma ruslapokana á að setja pokana í sér ruslatunnu sem er þarna fyrir aftan gáminn.
Gámurinn fyrir ruslapokana sést hér fremst á myndinni.
Stöndum saman og göngum vel um þetta nýja gámasvæði okkar! Allar ábendingar um slæma umgengni eða það sem betur mætti fara eru vel þegnar. Sendið skilaboð á bygg@grindavik.is