Hið árlega páskabingó var haldið í gær. Nemendur af yngsta stigi heimsóttu unglingastigið. Hópnum var skipt í tvennt. Fyrst var 10., 7., 1. og 2. bekkur saman og síðan 9., 8., og 3. bekkur. Eins og áður var fyrirkomulagið þannig að nemandi á yngsta stigi og unglingastigi deildu saman spjaldi, mátti sjá systkini og vini spila saman. Páskaegg voru í verðlaun og voru spilaðar nokkrar umferðir. Systurnar Ásrún og Valdís Kristinsdætur stjórnuðu bingóinu af einstakri snilld. Margir voru afar heppnir og fengu bingó en aðrir samglöddust og fá vonandi vinning næst.
Í dag hefst páskafrí og stendur til þriðjudagsins 2. apríl en þá hefst kennsla aftur samkvæmt stundaskrá. Grunnskólinn óskar nemendum, starfsfólki og foreldrum gleðilegra páska.