Æfingar standa nú yfir af fullum krafti fyrir metnaðarfulla dagskrá sem flutt verður í kirkjum á Suðurnesjum í dymbilviku, þar á meðal í Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 26. mars kl. 20:00. Arnór B. Vilbergsson organisti stendur í stafni og stjórnar kór, hljómsveit og einsöngvurum sem eru ekki af verri endanum. Má þar nefna Eyþór Inga Gunnlaugsson fulltrúa Íslands í Evróvisjón en hann mun syngja hlutverk Jesú og Sigurð Ingimarsson sem verður í hlutverki Júdasar.
Aðrir söngvarar eru úr röðum kórfélaga og margir þeirra munu jafnframt leika á ýmiss hljóðfæri.
Suðurnesjamenn og aðrir velunnarar eru boðnir velkomnir á meðan að húsrúm leyfir en enginn aðgangseyrir er á viðburðinn.
Hins vegar verður boðið upp á kaffi og kökur og safnað um leið frjálsum framlögum í orgelsjóð Keflavíkurkirkju. Að auki munu félagar úr kór Keflavíkurkirkju selja afmælisdiskinn sinn en kórinn varð 75 ára á síðasta ári. Allur ágóði af sölu disksins rennur jafnframt í orgelsjóðinn.