Sumarstörf hjá Grindavíkurbć - Umsóknarfrestur til 22. mars

  • Fréttir
  • 19. mars 2013

Grindavíkurbær auglýsir sumarstörf 2013. Um er að ræða starfsmenn við Kvikuna, tjaldsvæðið, Sambýlið, flokksstjórar Vinnuskólans og leiðbeinendur við leikjanámskeið. Umsækjendur þurfa að fylla út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar (www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi föstudaginn 22. mars n.k. fyrir öll störfin. Hér má sjá nánari upplýsingar um störfin:

Starfsmaður á íþróttasvæði

Grindavíkurbær auglýsir hér með eftir starfsmanni til að starfa á íþróttasvæðinu sumarið 2013. Starfstímabil er frá 15. apríl til 15. september. Leitað er að einstaklingi 25 ára og eldri sem hefur;

- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, getur unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum,
Helstu verkefni eru sláttur og umhirða á íþróttavallarsvæðinu auk verkefna á vallarsvæði þegar leikir, mót eða aðrir viðburðir fara fram á svæðinu. Vinnutími er sveigjanlegur.
Vakin er athygli á því að GRINDAVÍKURBÆJAR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 660 7304, netfang: hermann@grindavik.is .
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar ( www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi þriðjudaginn 2. apríl n.k.


Starfsmaður í Kvikuna

Grindavíkurbær og Kvikan, auðlinda- og menningarhús, auglýsa eftir starfsmanni til að starfa í Kvikunni sumarið 2013. Starfstímabil er frá 1. maí til 2. september. Starfið felst í móttöku gesta, upplýsingaveitu, uppgjöri og þrifum. Vinnutími er frá kl. 10:00 - 17:00 alla virka daga.

Leitað er að einstaklingi 25 ára og eldri sem hefur;
- ríka þjónustulund,
- góða tungumála kunnáttu (enska og eitt Norðurlandamál
skilyrði),
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum
- mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki síst góða þekkingu á staðháttum í Grindavík og nágrenni.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Róbert Ragnarsson
bæjarstjóri og stjórnarformaður Saltfiskseturs Íslands í síma 420 1100, netfang: robert@grindavik.is
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar ( www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi 22. mars n.k.

 


Starfsmenn á tjaldsvæði og í Kviku

Grindavíkurbær og og Kvikan, auðlinda- og menningarhús, auglýsa eftir starfsfólki til að starfa á tjaldsvæði
Grindavíkurbæjar og í Kvikunni sumarið 2013. Starfstímabil er frá 13. maí til 1. september. Ráðnir verða þrír starfsmenn sem ganga munu vaktir á þessum tveimur starfsstöðum. Á tjaldsvæðinu á virkum dögum og í Kvikunni um helgar. Starfið felst í móttöku gesta, upplýsingaveitu, uppgjöri og þrifum.

Leitað er að einstaklingum helst 18 ára og eldri sem hafa;
- ríka þjónustulund,
- góða tungumála kunnáttu (enska og eitt Norðurlandamál
skilyrði),
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum
- mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki síst góða þekkingu á staðháttum í Grindavík og nágrenni.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorsteinn Gunnarsson upplýsinga- og þróunarfulltrúi Grindavíkurbæjar í síma 420 1100, netfang: thorsteinng@grindavik.is
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar ( www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi 22. mars n.k.

 


Starfsfólk í Sambýli

Sambýli fatlaðra í Grindavík auglýsir eftir starfsfólki í u.þ.b. 80% starf í sumarafleysingar. Starfstímabil er frá 21. maí til 15. september. Starfið felst í almennri umönnun og eftirfylgd íbúa í sambýlinu innan og utan heimilisins, almennum heimilis-verkum, þrifum og ýmsum tilfallandi verkefnum.

Leitað er að einstaklingi 20 ára og eldri sem hefur;
- ríka þjónustulund
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum
- mikla ábyrgðartilfinningu
- grunnþekkingu í almennri tölvunotkun
Sambýli fatlaðra er reyklaus vinnustaður.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðný Sigfúsdóttir forstöðumaður Sambýlis fatlaðra í síma 426 9909, netfang: gudnys@grindavik.is
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar ( www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi 22. mars.

 


Flokksstjórar við Vinnuskóla Grindavíkur

Vinnuskóli Grindavíkur auglýsir eftir flokksstjórum til að starfa við skólann sumarið 2013. Starfstímabil er frá 21. maí til 16. ágúst. Leitað er að einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa;
- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum,
- mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki en síst
- ánægju að því að vinna með og leiðbeina unglingum.
Flokkstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi , ástundun og góðri umgengni starfsmanna.
Flokkstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skuli að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.
VINNUSKÓLI GRINDAVÍKURBÆJAR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristinn J. Reimarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs í síma 660 7310, netfang: kreim@grindavik.is.

Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar (www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi föstudaginn 22. mars n.k.

 


Leiðbeinendur við leikjanámskeið Grindavíkurbæjar

Grindavíkurbær auglýsir hér með eftir leiðbeinendum til að starfa við leikjanámskeið bæjarins sumarið 2013. Starfstímabil er frá 10. júní til 2. ágúst. Leitað er að einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa;
- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum og síðast en ekki en síst reynslu og ánægju að því að vinna með börnum og unglingum.

Leiðbeinendur hafa umsjón með starfsemi leikjanámskeiðanna í samráði við sviðssstjóra frístunda- og
menningarsviðs Grindavíkurbæjar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar í síma 660 7310, netfang: kreim@grindavik.is

Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar (www.grindavik.is/umsokn),
í síðasta lagi föstudaginn 22. mars n.k.

 

 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!