Hljómsveitin Skálmöld hélt frábæra tónleika í Kvikunni síðastliðið laugardagskvöld en þeir voru hluti af Menningarvikunni. Vel var mætt á tónleikana og flutti hljómsveitin gæða þungarokk upp á íslenska tungu. Frábær stemmning var á tónleikunum og í lok þeirra var tilkynnt að Skálmöld verður með tónleika í Grindavík á Sjóaranum síkáta. Hér má sjá nokkrar myndir frá tónleikunum.