ORF Líftækni undirritaði fyrir skömmu samning við stórt bandarískt fyrirtæki um sölu á vaxtarþáttum til stofnfrumurannsókna í Bandaríkjunum, en vaxtarþættirnir eru framleiddir í erfðabreyttu byggi í Grænu smiðjunni í Grindavík af ORF Líftækni.
Að sögn Björns Örvars, framkvæmdastjóra ORF Líftækni er þetta fyrsti stóri samningurinn sem ORF gerir á þessu sviði en fleiri slíkir munu fylgja í kjölfarið, m.a. fyrir Japansmarkað.
Mikil aukning hefur verið á sölu EGF Húðvara hér á landi, salan jókst um 20% á milli áranna 2011 og 2012. Sala á erlendum húðvörum Sif Cosmetics, dótturfyrirtækis ORF Líftækni, jókst um 100% á milli áranna 2011 og 2012.
„Einn til tveir hópar erlendra blaðamanna heimsækja Grænu smiðjuna í Grindavík í hverj-um mánuði. Í janúar voru þar til dæmis ritstjórar Elle og Cosmopolitan í Tyrklandi í heimsókn en blaðamenn frá mörgum helstu tískutímaritum heims hafa heimsótt Grænu smiðjuna frá því á síðasta ári. Í nóvember síðastliðnum birtist t.d. stór umfjöllun um Grænu smiðjuna og húðvörur Sif Cosmetics í franska tímaritinu GALA," segir Björn.
Þess má geta að EGF húðdroparnir eru mest selda snyrtivaran um borð í flugvélum Lufthansa, Air France, Swiss, Icelandair og British Airways.
„Á síðasta ári tókum við í notkun fræverkun-arhús í Grindavík og gert er ráð fyrir enn frekari uppbyggingu í Grindavík. M.a. er verið að skoða frekari stækkun á Grænu smiðjunni en fyrirsjáanlegt er að fyrirtækið þurfi að auka verulega framleiðslugetu sína á næstunni þar sem Græna smiðjan er nú þegar orðin of lítil," segir Björn.