Safnahelgi á Suđurnesjum - Ókeypis á öll söfn

  • Fréttir
  • 16. mars 2013

Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í fimmta sinn upp á sameiginlega dagskrá helgina 16. - 17. mars n.k. Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og því verður margt á döfinni og fjölbreytt dagskrá. Auk þess eru ýmis gallerí opin þar sem handverk og listmunir eru til sýnis og sölu. Athygli er vakin á því að ókeypis er inn á öll söfnin að þessu tilefni og um leið á þá dagskrá sem er í boði á hverjum stað.

Í ár hafa nokkur veitingahús og gististaðir slegist í hóp með söfnunum og bjóða upp á alls kyns kræsingar og gistimöguleika. Hægt verður að fá margs konar dýrindis rétti sem eldaðir eru úr hráefni af Suðurnesjum en eins og allir vita sækja Suðurnesjamenn ennþá sjóinn og því fjölbreytt úrval góðra sjávarrétta í boði.

Fulltrúar allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af Menningarráði Suðurnesja.

Dagskrá safnahelgarinnar má sjá á vefnum safnahelgi.is.

Þarna kennir ýmissa grasa, sýningar, fyrirlestrar og margs konar uppákomur. Myndlist, saga, tónleikar, norræn goðafræði, víkingar, bátasmíði, rokk og ról, Skessan í hellinum, Heimskautin heilla og Sköpun alheimsins svo fátt eitt sé nefnt auk þess sem haldin verður uppskriftarkeppni á saltfiskréttum. Í boði er sem sagt mjög fjölbreytt menningardagskrá og ókeypis afþreying fyrir alla fjölskylduna.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir