Sumarstarf hjá Ţekkingarsetri Suđurnesja

  • Fréttir
  • 27. febrúar 2013

Þekkingarsetur Suðurnesja í Sandgerði óskar eftir starfsmanni í sumarafleysingar frá og með 3. júní til og með 30. ágúst. Sóst er eftir háskólanema í náttúrufræðum eða hugvísindum og æskilegt er að hann sé búsettur á Suðurnesjum. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af þjónustustörfum, mikla þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og góða íslensku- og enskukunnáttu.

Starfið felur í sér umsjón með sýningum Þekkingarsetursins og móttöku gesta, textaskrif, þrif og önnur tilfallandi verkefni. Gert er ráð fyrir einhverri helgarvinnu. 

Starfsumsókn ásamt ferilskrá skal send á netfangið: hanna@thekkingarsetur.is fyrir 12. mars 2013. Frekari upplýsingar um starfið má fá hjá Hönnu Maríu Kristjánsdóttur, forstöðumanni Þekkingarsetursins, í síma 423-7555.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir