Það er orðin hefð í Grunnskólanum að halda upp á konudaginn með ýmiskonar veisluföngum sem strákarnir sjá um að koma með í skólann. Þetta hefur vakið mikla gleði og tilhlökkun hjá stúlkunum að sjá hvernig þeir standi sig. Það var ekki að sökum að spyrja að þeir standi sig og engin breytinga varð að þessu sinni. Nokkrir drengjanna klæða sig upp og mæta með hálstau í skólann.
Síðan gæða allir sér á veisluföngunum og grípa í spil, rabba saman eða horfa á mynd. Smá uppábrot á deginum en færa nemendur saman á góðri stund. Hefð sem er þess virði að halda í.