Skandinavíski dúettinnn Monkey Bar spila á Bryggjunni mánudagskvöldið 25. febrúar kl. 21:00. Dúettinn skipa sænski trommuleikarinn Erik Nylander og norski hljómborðsleikarinn Steinar Mickelsen. Með þeim spilar einnig gítarleikarinn Andrés Þór sem var tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna 2013 fyrir bestu jazzplötuna.
Monkey bar leika frumsamda popp skotna jazz tónlist. Þeir félagar léku á síðasta ári á Bryggjunni en eru nú aftur komnir til landsins og það er gaman að geta þess að þeir óskuðu sérstaklega eftir að leika í Grindavík, á kaffihúsinu Bryggjunni þar sem þeir hrifust svo af staðnum.
MonkeyBar er skandínavískur dúett sem inniheldur hljóðfæraleikara sem hafa spilað og unnið saman í átta ár í mismunandi hljómsveitum og uppsetningum. Dúettinn leikur eigin tónlist sem er blanda af poppi,elektróník,jazz og techno með áherslu á spuna sem kemur frá þeirra bakgrunn sem jazztónlistarmenn. MonkeyBar framreiðir tónlistina með bros á vör og skapar tilfinningaríka stemningu blandaða lævísum húmor.