Heimasíðunni hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning: „Samfylkingin í Grindavík boðar til opins fundar með Árna Páli Árnasyni, nýkjörnum formanni Samfylkingarinnar - Jafnaðarmannaflokks Íslands, fimmtudaginn 21. febrúar í Verkalýðshúsinu Víkurbraut 26. Fundurinn hefst kl. 20.00.
Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, verður einnig gestur fundarins.
Við hvetjum sem flesta til að mæta og taka þátt í skemmtilegum og uppbyggilegum umræðum um samfélagið og framtíðarsýn fyrir land og þjóð.
Allir velkomnir.
Stjórnin"