Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýsluviðs mætti á fund bæjarráðs og fór yfir minnisblað hans og slökkvistjóra varðandi mögulega yfirtöku Grindavíkurbæjar á sjúkraflutningum. Ljóst er að það fjármagn sem á að fylgja verkefninu frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mun ekki duga til að reka verkefnið í samræmi við kröfur Sjúkratrygginga Íslands til sjúkraflutninga.
Bæjarráð telur að Grindavíkurbær geti sinnt þjónustunni með betri hætti en HSS ef rétt fjármagn fylgir með verkefninu.