Á fundi frístunda- og menningarnefndar þann 6. febrúar sl. var til umræðu varðveisla gamalla muna sem hafa verið geymdir í áhaldahúsi bæjarins í nokkur ár. Eru þetta munir sem m.a. voru í geymslu á 3ju hæð Víkurbraut 62, áður en þeirri hæð var breytt í skrifstofuhúsnæði, og munir sem voru í Gestshúsi. Á fundinn mættu þeir Hallur Gunnarsson, Einar Lárusson og Örn Sigurðsson en þeir félagar hafa í sínum frítíma flokkað þessa muni og sett í geymslukassa sem nú eru geymdir hjá Þorbirni hf.
Sýndu þeir myndir af helstu munum og vilja gjarnan fá svör við því hvað Grindavíkurbær hyggst gera með þá. Málið var svo til umræðu í bæjarráði Grindavíkur sem felur frístunda- og menningarnefnd að kalla eftir mati óháðs aðila á menningarlegu- og sögulegu gildi þessara hluta og jafnframt því að hefja vinnu við gerð menningarstefnu Grindavíkurbæjar sem m.a. tekur á varðveislu sögulegra muna.
Bæði frístunda- og menningarnefnd og bæjarráð bóka þakklæti til þeirra félaga fyrir bæði virðingavert og óeigingjarnt sjálfboðastarf í þágu samfélagsins í Grindavík.
Nánar verður fjallað um málið í næstu Járngerði.
Efsta mynd: Hallur Gunnarsson á fullu í að flokka gamla muni.
Þetta er fyrsta tölva Grindavíkurbæjar.