Íslandsmeistarar Grindavíkur lögðu ÍR örugglega að velli í úrvalsdeild karla í körfubolta í gærkvöldi með 102 stigum gegn 80. Afleitur fyrsti leikhluti kom ekki að sök en Grindavík skoraði þá aðeins 11 stig gegn 27 stigum ÍR.
Grindvíkingar tóku sig saman í andlitinu og skoruðu 31 stig í öðrum leikhluta og í seinni hálfleik var aldrei spurning hvernig þessum leik myndi lykta. Þar með náði Grindavík aftur tveggja stiga forskoti á toppnum og geta leikmenn liðsins nú einbeitt sér að bikarúrslitaleiknum næsta laugardag.
Grindavík-ÍR 102-80 (11-27, 31-17, 28-16, 32-20)
Grindavík: Aaron Broussard 22/11 fráköst/6 stoðsendingar, Samuel Zeglinski 16/5 stoðsendingar, Ryan Pettinella 11, Jóhann Árni Ólafsson 11, Þorleifur Ólafsson 9/5 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 9/11 fráköst, Jón Axel Guðmundsson 7, Ómar Örn Sævarsson 7/7 fráköst, Ólafur Ólafsson 4, Daníel G. Guðmundsson 3, Björn Steinar Brynjólfsson 3.