Á miðvikudögum á milli kl. 16:30 - 18:30 fer fram skipulagt starf í félagsmiðstöðinni Þrumunni fyrir krakka í 5. - 7. bekk. Í síðustu viku var boðið upp á hellaferð í samstarfi við Björgunarsveitina Þorbjörn. Tókst sú ferð ljómandi vel og krakkarnir himinlifandi með þessa upplifun.
Dagskrá fyrir þennan hóp má nálgast hér á heimasíðunni undir Þrumunni.