Sigurður R. Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvennaliðsins í knattspyrnu, verður með opinn fund í Andrews í Ásbrú föstudaginn 1. febrúar kl. 11-12. Sigurður hefur náð einstökum árangri með landsliðið okkar, m.a. komið því í úrslit Evrópumótsins. Einstakur árangur og er þáttur þjálfarans í þessum glæsilega árangri verulegur.
Sigurður R.Eyjólfsson er líka sálfræðingur að mennt. Hann hefur haldið fyrirlestra fyrir almenning og starfsfólk fyrirtækja um það að ná árangri - ekki bara í íþróttum heldur í lífinu almennt - hvort heldur er í starfi eða einkalífi. Hefur verið gerður mjög góður rómur að þessum fyrirlestrum Sigurðar og hann eftirsóttur.
Nú gefst Suðurnesjabúum öllum kostur á að hlýða á eldhugann Sigurð í Andrews föstudaginn 1. febrúar kl. 11-12. Keilir, Kadeco og SAR í samstarfi við fyrirtæki á Suðurnesjum standa að þessum fundi og bjóða öllum áhugasömum að koma. Enginn efast um gagn af eldmessu Sigurðar. Hvernig náum við árangri?