Blómlegt og fjölbreytt starf er í Grindavíkurkirkju og þar er ýmislegt í boði eins og foreldramorgnar, bænastundir, hádegissamvera, kóræfingar, opið hús fyrir eldri borgara, æskulýðsstarf, sunnudagaskóli og svo að sjálfsögðu messur. Hér má sjá dagskrá vikunnar í kirkjunni:
Þriðjudagur:
Kl.10-12 Foreldramorgnar
Kl. 20. Íhugun og bænastund
Miðvikudagur:
Kl. 12. Hádegissamvera, bæna og fyrirbænastund
og súpa á eftir.
Kl. 15:30 -17:30 Fermingarfræðsla
Kl. 19-21 Kóræfing
Fimmtudagur:
Kl. 13-16 Opið hús fyrir eldri borgara
Kl. 17:30 TTT starf og kl. 19:30 æskulýðsstarf