Þrjú námskeið í hestamennsku (ekki reiðnámskeið) með Coru hjá Mundu og Palla austur í Þórkötlustaðarhverfi verða í febrúar:
Hestamennska er mun meira en að fara á bak. Þetta námskeið er ætlað öllum sem vilja læra að umgangast hesta, hvernig hestar hugsa, hvað þeim finnst gott eða vont.
Námskeiðið er ætlað lítið vönum hestamönnum og byrjendum.
Hestar, reiðtygi og léttar veitingar eru á staðnum.
Þetta er ekki reiðnámskeið en fólki býðst tækifæri til að fara á bak og læra að sitja hest á námskeiðinu.
Byrjað er á bóklegum tíma:
Farið verður yfir atriðin sem við förum síðan í í hesthúsinu
Eðli og atferli hestsins
ALLIR VELKOMNIR, BÆÐI FÉLAGSMENN OG AÐRIR!
Verð 8.000kr
Lágmarksfjöldi þátttakanda er fimm.
Skráið ykkur sem fyrst hjá Coru Claas í síma 844-6967 eða jovanna@gmx.de