Ólína til Chelsea

  • Fréttir
  • 24. janúar 2013

Grindvíkingurinn Ólína G. Viðarsdóttir og sambýliskona hennar Edda Garðarsdóttir, landsliðskonur í knattspyrnu, sömdu í vikunni við enska félagið Chelsea um að leika með því á komandi keppnistímabili í ensku atvinnudeildinni, WSL-deildinni. 

Chelsea hafnaði í sjötta sæti WSL-deildarinnar á síðasta ári en keppni þar fer fram frá mars og framí október.

Edda og Ólína hafa verið í röðum sænska úrvalsdeildarliðsins Örebro undanfarin fjögur ár og verið þar í stórum hlutverkum en Ólína var í barnsburðarleyfi á síðasta ári og lék ekkert með liðinu.

Edda er 33 ára gömul og er næst leikjahæsta landsliðskona Íslands með 97 landsleiki. Ólína, sem er þrítug, er í 10.-11. sæti á þeim lista með 55 landsleiki.

Þar með eru þrjár íslenskar landsliðskonur komnar í WSL-deildina en Katrín Ómarsdóttir samdi á dögunum við Liverpool. Átta lið leika í deildinni en auk Chelsea og Liverpool eru það Arsenal, Birmingham, Everton, Bristol Academy, Lincoln og Doncaster. Deildin er sjálfstæð að því leyti að hún er ekki tengd við neðri deildir í Englandi en önnur tíu félög spila í ensku úrvalsdeildinni.

Mynd: Ólína í Hópinu 2009 þar sem hún var með knattspyrnunámskeið ásamt Eddu fyrir grindvískar stelpur.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!