Í gærkvöldi sáust að minnsta tveir hvalir í Grindavíkurhöfn en líklega er þetta einsdæmi hér um slóðir að sögn kunnugra. Þeir sátu þar við veisluborð því töluvert magn af síld hefur verið í höfninni undanfarna daga. Hvalirnir voru horfnir úr höfninni í morgun en talsvert er enn af síld en þar hafa súlur verið að steypa sér í sjónn.
Hvalirnir festust ekki á filmu í gærkvöldi vegna myrkurs. Ef einhver lumar á góðri mynd væri vel þegið að fá hana senda á heimasidan@grindavik.is til birtingar á heimasíðunni.