Fyrir rúmum tveimur árum barst þáverandi umhverfisnefnd ábendingar um erfitt aðgengi í fjöruna í Bót eftir að sjóvarnargarður var kláraður. Nefndin benti bæjarráði á að auðvelt væri að finna lausn á þessu með álstiga þar sem garðurinn er lægstur.
Í síðustu viku var lokið við smíði stigans og var hann settur yfir garðinn í Bót, göngugörpum til mikillar gleði. Það var fyrirtækið Suðurpóll í Grindavík sem sá um smíði stigans sem þykir sérlega vel heppnuð samgöngubót.