Flugeldasalan hefst á morgun

  • Fréttir
  • 27. desember 2012

Hin árlega og ómissandi flugeldasala Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar opnar á morgun föstudaginn 28. des. kl. 12:00 og verður opin til 22:00. Opnunartímar flugeldasölunnar eru annars eftirfarandi.

  • Föstudagur 28. des. 12:00-22:00
  • Laugardagur 29. des. 12:00-22:00
  • Sunnudagur 30. des. 12:00-22:00
  • Mánudagur 31. des. 10:00-16:00

Einnig verður slökkviliðið á staðnum að selja slökkvitæki, reykskynjara og annan eldvarnabúnað.

Börnum yngri en 16 ára eru ekki seldir flugeldar. Fullorðnir skulu ávallt aðstoða börn með þessa vöru.

Athygli  er vakin á því að Björgunarsveitin Þorbjörn verður með eina veglega flugeldasýningu og verður hún á þrettándanum.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!