Að vanda verða Sjómannastofan Vör og Salthúsið með skötuveislu á Þorláksmessu, 23. desember nk. Hér má sjá það sem þau bjóða upp á:
Salthúsið: Skötuveislan byrjar kl. 18:00 og stendur til kl. 21:00. Í boði er skata, saltfiskur, plokkfiskur, rúgbrauð og síld. Vinsamlegast pantið borð í síma 426-9700 og 699-2665. Verðið er 3.500 kr.
Sjómannastofan Vör: Skötuhlaðborð í hádeginu og um kvöldið. Skata, saltfiskur, plokkfiskur, rófur, kartöflur, hamsatólg, vestfirskur hnoðmör, grjónagrautur, síld og rúgbrauð. Verð kr. 3.000. Borðapantanir í síma 426 8570 og 661 1213. Vinsamlega pantið tímanlega.