Þegar líða fer að jólum breytir skólinn um svip. Jólaskreytingar setja svip á umhverfið og skreytinganefnd vinnur hörðum höndum við að breyta skólanum með ýmis konar jólaskreytingum. Sleðinn settur fyrir ofan dyr í anddyri skólans, handriðið klætt greni og jólakortakassar fyrir utan stofur í unglingaskólanum. Allt gert til að fagna komu jólanna. Að endingu er jólatréð í salnum skreytt og þá mega jólin fara að koma eins og segir í kvæðinu.
Á litlu jólunum er dansað í kringum jólatréð og taka allir þátt í því. Jólaandinn er sagður koma innan frá.