Nýtt húsnćđi bókasafns og tónlistarskóla rís viđ grunnskólann

  • Bókasafnsfréttir
  • 18. desember 2012

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur ákveðið að sameina almennings- og skólabókasafn í nýju húsnæði sem fyrirhugað er að byggja við grunnskólann. Jafnframt verður nýtt húsnæði tónlistarskólans í sömu byggingu.

Markmið sameiningarinnar er að hagræða í rekstri og bæta þjónustu bókasafns fyrir skóla og almenning. Bæjarstjórn hefur jafnframt ákveðið að flytja starfsemi Tónlistarskóla Grindavíkur í nýtt húsnæði sem fyrirhugað er að byggja við Grunnskóla Grindavíkur. Markmið þeirrar breytingar er að auka samstarf skólanna enn frekar, efla samfellu í námi nemenda í grunn- og tónlistarskóla og stuðla að aukinni grósku í menningarlífi Grindvíkinga. Þegar þessu verkefni er lokið verður til rými í skólanum sem mun nýtast undir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar. Þegar öll þessi starfsemi; grunnskóli, tónlistarskóli, bókasafn og félagsmiðstöð, er komin undir sama þak skapast miklir möguleikar í eflingu á menningartengdri starfsemi fyrir allar kynslóðir samfélagsins og húsnæðið mun verða suðu-pottur lærdóms, tómstunda og menningar öllum til heilla.

Hönnun:
Í kjallara verða tæknirými og geymslur fyrir grunnskólann, bókasafnið og tónlistarskólann. Á 1. hæð verður bókasafn. Gert er ráð fyrir að á bókasafninu verði góð vinnuaðstaða fyrir gesti, skrifstofa, gott lestrarherbergi og starfsmannaaðstaða. Á safninu verður verkum Guðbergs Bergssonar gerð góð skil og hægt verður að nálgast öll hans verk á aðgengilegan hátt. Á 2. hæð verður tónlistarskóli. Gert er ráð fyrir að í tónlistarskólanum verði 2 skrifstofur,vinnuaðstaða fyrir kennara, 4 kennslustofur, hljóðver, ásamt sal sem hægt er að skipta í tvær einingar.

Stærðir:
Kjallari: Nettóflötur 167,8 m²
1. hæð: Nettóflötur 424,5 m²
2. hæð: Nettóflötur 375,2 m²
Vert er að taka fram að um er að ræða drög sem eru í vinnslu og geta teikningar breyst lítillega við fullnaðarhönnun. 

Kostnaður:
Heildarkostnaður framkvæmda er áætlaður um 350 milljónir króna. 
Tímaáætlun: Áætlað er að verkið verði boðið út á fyrri hluta árs 2013. Framkvæmdir muni hefjast í júní 2013 og verkinu verði lokið fyrri hluta árs 2014.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!