Nýtt tjaldsvæði, upplýsingamiðstöð, nýr tónlistarskóli og skólaskrifstofa á bæjarráðsfundi
Á fundi bæjarráðs Grindavíkur sem kom saman til fundar í gær, voru fjölmörg mál
tekin til umfjöllunar.
Þar kom m.a fram ;
Nýtt tjaldsvæði við Austurveg í Grindavík.*
Bæjarráð samþykkir að nýtt tjaldsvæði verði hannað samkvæmt framlögðum uppdrætti.
Tillaga að nýjum tónlistarskóla við Kvennó.
Lagðar fram fyrstu hugmyndir að hönnun nýs tónlistarskóla.
Bréf skólamálafulltrúa vegna framkvæmda við aðstöðu skólaskrifstofu,
Bréfið lagt fram. Bæjarráð samþykkir tillögu skólamálafulltrúa og vísar fjárveitingu
kr. 3.000.000 til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.
Bréf Ferðamálasamtaka Suðurnesja vegna upplýsingamiðstöðvar við Bláa lónið.
Bréfið lagt fram. Bæjarráð tekjur jákvætt í erindið, að farið verði í viðræður
við stjórn S.S.S. um það á hvern hátt sveitarfélögin á Suðurnesjum geti komið
að uppbyggingu og rekstri kynningarmiðstöðvar ferðamála á Suðurnesjum við Bláa
lónið.
Einnig kom fram gagnrýni á vinnubrögð við gerð samgönguáætlunar
Bréf Alþingis, ósk um umsögn um samgönguáætlun 2007-2010.
Bréfið lagt fram. Bæjarráð ítrekar við samgöngunefnd Alþingis á að fyrirvari
sá sem gefinn er í bréfinu er alltof skammur til að bæjarstjórn geti fjallað um
svo veigamikið mál sem frumvarp til samgönguáætlunar er, en einungis var gefin
vika til umsagnar.
Umsögn: Suðurstrandarvegur. Bæjarráð vísar í umsagnir S.S.S og S.A.S.S og bendir
á að loforð um lagningu Suðurstrandarvegar voru gefinn í tengslum við kjördæmabreytinguna
árið 1999 og jafnframt að fjárframlög til hans hefðu ekki áhrif á fjárveitingar
annarra samgönguframkvæmda í hinu nýja kjördæmi. Bæjarráð gerir kröfu um að staðið
verði við þau fyrirheit. Bæjarráð bendir á að með tilkomu Suðurstrandarvegar mun
létta á umferð á höfuðborgarsvæðinu m.a. vegna mikilla fiskflutninga frá suðurlandi
og austfjörðum til Keflavíkurflugvallar.
Því má bæta við að í þingskjali til þingsályktunar er einugis að finna 400 miljónir
í Suðurstrandarveginn til ársins 2012