Gleđileg jól í Grindavík

  • Fréttir
  • 14. desember 2012

Senn ganga jólin í garð, með hátíð sinni og frístundum. Þessi tími er ekki hvað síst tilvalinn til að fjölga samverustundum á heimilum. Um jól gefast stundir, sem gott er að nota til að rækta samfélagið við fjölskyldu, vini og vandamenn. 

Fjölmargar rannsóknir sýna að ungmennin sjálf kjósa að fjölskyldan verji meiri tíma saman og þau eru sjálf tilbúin til að leggja sitt af mörkum svo það geti orðið. Í þessu ljósi hvetur samráðshópur um forvarnir í Grindavík alla Grindvíkinga til að standa vörð um hagsmuni íbúanna og um leið bæjarfélagsins á þessari jólahátíð. Við hvetjum alla foreldra til að vera vakandi fyrir því hvað unglingarnir taka sér fyrir hendur í kringum jólahátíðina. Leyfum ekki eftirlitslaus partý. Virðum lögboðin útivistartíma og verum vakandi fyrir skilaboðum sem ganga á milli ungmennanna. Mikilvægi sterkra tengsla milli unglinga og foreldra verða seint ofmetin. Niðurstöður fjölmargra rannsókna sýna að samvistartími og samvera unglinga með foreldrum og fjölskyldu hafi margvísleg jákvæð áhrif í lífi þeirra. 

Ræðum við börnin okkar og setjum skýrar reglur. Verum ábyrg og vakandi gagnvart mannlífinu í kringum okkur. Hugum vel að börnum okkar og ungmennum.

Grindavík er fjölskylduvænn bær og hér er gott að búa. Við, sem hér búum, erum andlit bæjarins út á við. Það orð sem fer af bænum okkar veltur á hegðun okkar og framgöngu. 

Meginmarkmið forvarna er heilbrigði og hamingja barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra þannig að Grindvík standi undir nafni sem fjölskylduvænt bæjarfélag. Það er stefna Grindavíkurbæjar að styrkja fjölskylduna og treysta samheldni hennar og velferð.

Með von um gleðilega jólahátíð.

Samráðshópur um forvarnir.

Kristinn J. Reimarsson
Sviðsstjóri frístunda-
og menningarsviðs

Nökkvi Már Jónsson
Sviðsstjóri félagsþjónustu og fræðslumála

Bjarni M. Svavarsson
Formaður UMFG

Lovísa Hilmarsdóttir
F.h. Grunnskóla Grindavíkur

Gígja Eyjólfsdóttir
F.h. foreldrafélags leikskólans Laut


Albína Unndórsdóttir
F.h. leikskólans Laut

Bylgja Héðinsdóttir
F.h. leikskólans Króks

Kolbrún Jónsdóttir
F.h. foreldrafélags
leikskólanum Króki

Sigurður Ágústsson
F.h. lögreglunnar

Laufey Birgisdóttir
F.h. Heilsugæslunnar

Páll Erlingsson
F.h. Golfklúbbs Grindavíkur

Sr. Elínborg Gísladóttir
F.h. Grindavíkurkirkju

Helena Bj. Bjarnadóttir
F.h. Frístunda- og
menningarnefndar

Otti Sigmarsson
F.h. Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar

Hilmar Knútsson
F.h. Hestamannafélagsins Brimfaxa

Þórunn Alda Gylfadóttir
F.h. foreldrafélags Grunnskóla Grindavíkur.


 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun