Eftirfarandi grein birtist í Járngerði, fréttabréfi Grindavíkurbæjar, sem kom út í vikunni, og er eftir Róbert Ragnarsson bæjarstjóra:
Árið 2012 hefur verið Grindvíkingum hagstætt. Sjávarútveginum hefur gengið vel og makríllinn var sannkallaður bónus í sumar. Sífelld aukning er í ferðaþjónustunni og ferðamannatíminn er að lengjast. Ferðaþjónustuaðilar segja mér að október í ár sé sambærilegur við september í fyrra. Þegar meginstoðum atvinnulífsins vegnar vel, þá vegnar íbúum og bæjarsjóði vel.
Tekjur Grindavíkurbæjar hafa vaxið mikið á árinu og við gerum okkur hóflegar væntingar um að svo verði áfram á næstu árum. Vaxandi tekjur og árangur hagræðingaraðgerða síðustu tveggja ára hafa leitt til þess að rekstur Grindavíkurbæjar er að komast í gott jafnvægi. Gert er ráð fyrir afgangi af rekstri ársins 2012 og góðum afgangi á árinu 2013. Bæjarstjórn hefur í ljósi þess ákveðið að lækka skatta í Grindavík. Útsvarið lækkar úr 14,48% í 14,28%, auk þess sem vatns- og fráveitugjöld lækka. Sem kunnugt er skuldar Grindavíkurbær lítið sem ekkert eftir uppgreiðslur lána á árinu 2011 og á enn rúmlega 1.300 milljónir í handbært fé.
Sigurinn í Útsvari, Íslandsmeistaratitill í körfubolta og gott ástand í atvinnulífinu hef-ur haft góð áhrif á bæjarbraginn sem gerir öll verkefni auðveldari og skemmtilegri. Umfjöllun fjölmiðla um Grindavík og Grindvíkinga hefur aukist jafnt og þétt og nær undantekningarlaust er þar um jákvæðar fréttir að ræða. Heimasíða Grindavíkurbæjar er í hópi mest heimsóttu sveitarfélagavefja landsins og Grindavík er í 11. sæti yfir þau sveitarfélög í landinu sem fá mesta umfjöllun í fjölmiðlum.
Það eru nokkur mjög stór verkefni í vinnslu hér í Grindavík. Ferðaþjónustuaðilar og sveitarfélög á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um stofnun GeoPark á Reykjanesi að frumkvæði Grindvíkinga. Breyting Festi í gistiheimili hefst á næsta ári og mikil uppbyggingar-áform eru við Bláa lónið. Sjávarútvegsfyrirtækin vinna að mjög spennandi verkefni við fullvinnslu þorksafurða undir nafninu Codland. Gangi áætlanir þeirra eftir mun verðmæti þorsksins aukast enn. Skipulagsmálum við Eldvörp er að ljúka og hefjast framkvæmdir við Eldvarpavirkjun innan fárra missera. Á vegum Grindavíkurbæjar verður á næsta ári byggt nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla og uppbygging nýrrar aðstöðu á íþróttasvæðinu hefst. Það verkefni mun taka 3-4 ár og verða engin lán tekin til að fjármagna þau verkefni. Í ár hefur verið unnið að bættu aðgengi að Grindavíkurhöfn og á næsta ári hefst markviss markaðssetning hafnarinnar sem skilar vonandi auknum skipakomum.
Staða Grindavíkur til sóknar er gríðarlega sterk og mikilvægt að við setjum okkur skýra framtíðarsýn í samræmi við það. Mín framtíðarsýn fyrir Grindavík er að hér verði áfram öflugasti sjávarútvegur landsins með blómstrandi ferðaþjónustu. Íþrótta- og menningarlíf verði eins og best gerist á landinu og skólarnir skili sterkum einstaklingum út í samfélagið sem láti að sér kveða.
Róbert Ragnarsson
bæjarstjóri