Járngerður, fréttabréf Grindavíkurbæjar, kemur út í dag og er að vanda stútfull af fróðlegu og skemmtilegu efni um ýmislegt sem viðkemur starfsemi bæjarins. Grindavíkurhöfn er í aðalhlutverki blaðisins að þessu sinni en einnig er fjallað ítarlega um þær miklu framkvæmdir sem eru framundan hjá Grindavíkurbæ á næsta ári.
Jafnframt er viðtal við Braga Ingvason yfirverkstjóra í þjónustumiðstöðinni og greint frá skipulagsbreytingum sem þar eru framundan. Þá er fjallað ítarlega um ungmennaþing, skemmtilegt skólaverkefni sem kallast Orð af orði, Margrét R. Gísladóttir á bóksafninu segir frá heimsókn sinni til vinabæjarins Penistone á Englandi á dögunum, sagt er frá starfseminni á Leikskólanum Laut þar sem nú starfar m.a. fyrsti karlmaðurinn í sögu leikskólans, sagt frá jarðvangi, félagsheimilinu Festi sem verður breytt í gistihús og m.a. birt teikning af skipulagi hússins. Jafnframt er greint fyrir fyrirhuguðu málþingi um skólamál, degi íslenskrar tungu, gildum bæjarins og ýmislegu fleiri.
Þetta fjórða tölublað ársins af Járngerði má jafnframt sjá hér.