Hefur þú skoðun á því hvort stefna eigi að uppbyggingu á inni- eða útisundlaug í Grindavík?
Þá hefur þú nú tækifæri til þess að láta þína skoðun í ljós með því að taka þátt í könnun hér á heimasíðunni (sjá borði efst á síðunni). Bæjarráð hefur falið frístunda- og menningarnefnd að meta hvort stefna eigi að uppbyggingu á inni-eða útisundlaug í Grindavík og meta kosti og galla við inni- og útisundlaug á svæðinu.
Nefndin hefur ákveðið að gera könnun á meðal bæjarbúa til að sjá vilja þeirra til þessa málefnis. Grindvíkingar eru hvattir til þess að taka þátt í könnuninni en hún verður opin í eina viku. Niðurstöður hennar verða síðan teknar fyrir hjá frístunda- og menningarnefnd.
Viltu taka þátt í könnuninni - Smelltu þá hér.